Við leitum að kennara eða þroskaþjálfa fyrir þátttökubekk Klettaskóla sem staðsettur er í Árbæjarskóla.
Klettaskóli er sérskóli fyrir nemendur með þroskahömlun og viðbótarfatlanir. Starfsmenn vinna í teymum og þurfa að hafa góða samstarfs- og samskiptahæfni, vera sveigjanlegir og tilbúnir að takast á við krefjandi en gefandi verkefni. Einkunnarorð skólans eru "Menntun fyrir lífið". Nám og kennsla nemenda er einstaklingsmiðuð þar sem byggt er á forsendum og styrkleikum hvers og eins nemanda.
Í þátttökubekknum eru 7 nemendur sem fá sérhæft námsúrræði undir stjórn Klettaskóla. Bekkurinn er með aðsetur í almennum grunnskóla. Í bekknum starfa nú þegar einn kennari og þrír stuðningsfulltrúar.