Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Varmárskóli

Umsjónarkennari í Varmárskóla

Varmárskóli · Skólabraut 1A, 270 Mosfellsbær
PART_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-15

Varmárskóli í Mosfellsbæ óskar eftir að ráða umsjónarkennara fyrir næsta skólaár

Í skólanum eru um 400 nemendur í 1.-6. bekk. Skólinn er Uppbyggingarskóli og verið er að innleiða Leiðsagnarnám. Þá er unnið með Byrjendalæsi í 1.-4.bekk og Læsi fyrir lífið í 5.-6.bekk.  Stutt er í fjölbreytta náttúru og lögð er áhersla á útikennslu. Í öllum árgöngum er mikið samstarf um nám og kennslu. Starfsmannahópurinn er öflugur, samvinna og samhjálp eru einkennandi fyrir samskipti innan hópsins og starfsandi hefur verið mjög góður. Okkur vantar umsjónarkennara sem eru tilbúnir til að takast á við þessi verkefni og verða partur af þessum góða samstarfshópi. Mögulegt starfshlutfall er á bilinu 80-100%.
 
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%