Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Heiða slf

Aðstoðarkona óskast til starfa

Heiða slf · Háholt 12, 220 Hafnarfjörður
SHIFTS alfred

Starfslýsing

Hæhæ :)

Ég er 45 ára kona, lífsglöð og jákvæð sem bundin er við hjólastól og leita því aðstoðarkonu til að hjálpa mér við hið daglega líf.

Dagarnir hjá mér eru fjölbreyttir og lifandi, og ég reyni að njóta lífsins eins og ég get. Skemmtilegast þykir mér að hlæja, hafa gaman, fara á tónleika og ferðast gjarnan til útlanda ásamt aðstoðarfólki mínu.
Það er unnið á 12 tíma vöktum og það er verið að bjóða uppá starf sem væri þá 8 vaktir á mánuði.


Það sem ég óska eftir er jákvæð, dugleg, áreiðanleg og líkamlega hraust aðstoðarkona sem er 25 ára eða eldri, með bílpróf, hreint sakavottorð og talar íslensku þar sem ég notast við merki til þess að tjá mig.
Viðkomandi þarf að geta byrjað fljótlega í starfinu.


Ég geri ekki þá kröfu að aðstoðarfólk búi yfir reynslu af starfi með fötluðu fólki. Ef þú telur þetta vera rétta starfið fyrir þig þá hlakka ég til að heyra frá þér.(only Icelandic speaking)

 

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%