Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Hrafnkatla

Starfsfólk óskast í vaktavinnu hjá Hrafnkötlu

Hrafnkatla
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Hrafnkatla leitar að ábyrgu og metnaðarfullu starfsfólki til að starfa í vaktavinnu.

Unnið er á:

  • 6, 8 eða 12 tíma dagvöktum
  • 12 tíma næturvöktum

Möguleiki er á að taka eingöngu dagvaktir.
Í boði eru bæði fullt starf og hlutastarf.

Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni þar sem unnið er með börnum og ungmennum með fjölþættan vanda, þar á meðal hegðunar-, tilfinninga- og þroskavanda, auk fötlunar í sumum tilvikum. Einnig felst í starfinu vinna með foreldrum og fjölskyldum þar sem lögð er áhersla á stuðning, leiðsögn og uppeldishæfni. Unnið er með viðkvæm og oft flókin mál sem krefjast fagmennsku, góðrar samskiptahæfni og hæfni til að byggja upp traust sambönd. Starfsmaður þarf að geta unnið sjálfstætt sem og í teymi og sýnt frumkvæði í starfi. Reynsla af vinnu með börnum, ungmennum, fjölskyldum eða einstaklingum með sérþarfir er kostur.

Um Hrafnkötlu

Hrafnkatla býður upp á fjölbreytta og sérsniðna þjónustu fyrir börn og ungmenni. Lögð er rík áhersla á öryggi, fagmennsku, stuðning og vellíðan í öllu starfi.

Starfsemin felur m.a. í sér:

Búsetuúrræði
Einstaklingsbundið úrræði fyrir börn og ungmenni sem þurfa stöðugt, öruggt og faglegt umhverfi.
Unnið er með daglegt líf, félagsfærni og sjálfstæði með áherslu á traust og stöðugleika.

Fjölskylduheimili (12–20 ára)
Stuðningsríkt heimili fyrir allt að fjögur ungmenni.
Unnið er út frá tengslamyndandi nálgun og gagnreyndum aðferðum með áherslu á skóla, vinnu og félagslíf.

Bráðavistun
Þjónusta allan sólarhringinn, allt árið, fyrir ungmenni í bráðri þörf á öryggi og skjóli.

Hvíldar- og sumardvöl
Tímabundin dvöl fyrir börn og fjölskyldur, t.d. yfir helgar eða vikur, með áherslu á hvíld og stuðning.

Einstaklingsstuðningur
Sérsniðinn stuðningur sem miðar að því að efla sjálfstraust, félagsfærni og þátttöku í samfélaginu.

Óboðað eftirlit og eftirlit með umgengni
Unnið að því að tryggja öryggi barns og styðja við jákvæð og örugg samskipti.

Uppeldisráðgjöf og foreldrafræðsla

Við veitum foreldrum faglega ráðgjöf og fræðslu sem miðar að því að efla foreldrafærni, styrkja samskipti og skapa stöðugt og uppbyggilegt heimilisumhverfi.

Stuðnings- og ráðgjafaþjónusta
Leiðsögn til barna, ungmenna og fjölskyldna í daglegu lífi, uppeldi og samskiptum í samstarfi við aðra fagaðila.

Greiningar- og leiðbeiningarvistun
Stuðningur við foreldra og börn þar sem þörf er á auknu eftirliti, leiðsögn og uppbyggingu í öruggu umhverfi.

Við bjóðum:

  • Fjölbreytt og krefjandi starf í faglegu umhverfi
  • Sterkt teymi og stuðning í starfi
  • Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á líf barna og ungmenna
  • Þjálfun og handleiðslu
Sækja um →

Launamat

476.093
kr / mánuð
Heimild: kjarasamningur
Nánar: Kjarasamn. fl.4 (AFL/SGS): Starfsfólk í alifuglaslátrun
Ársstofa: 5.713.116 kr
Traust: 50%