Norræna félagið á Íslandi leitar að metnaðarfullum verkefnastjóra til að stýra Nordjobb á Íslandi, lýðháskólastyrkjum Norræna félagsins og öðrum tilfallandi verkefnum félagsins. Um er að ræða 100% starf verkefnastjóra til 12 mánaða frá 1. júní 2026. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf á vormánuðum og unnið nokkrar klukkustundir á viku í samvinnu við núverandi verkefnastjóra.