Golfklúbburinn Oddur óskar eftir metnaðarfullum og framsýnum íþróttastjóra til að leiða íþróttastarf klúbbsins með sérstaka áherslu á að efla barna- og unglingastarf og tryggja faglega og markvissa uppbyggingu golfíþróttarinnar innan Golfklúbbsins Odds. Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra sýn, sterka skipulagshæfileika og brennandi áhuga á að þróa golfið áfram á öllum getustigum.
Helstu verkefni
- Mótun og framkvæmd heildarstefnu íþróttastarfs Golfklúbbsins Odds, í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra og stjórn.
- Umsjón með barna- og unglingastarfi, þjálfunaráætlunum og stuðningi við keppnisfólk.
- Skipulagning og samhæfing æfinga, námskeiða og fræðslu fyrir börn, unglinga og fullorðna.
- Leiðsögn og faglegur stuðningur við þjálfara.
- Samstarf við Golfsamband Íslands, bæjarfélag, aðra klúbba og lykilaðila í íþróttastarfi.
- Ábyrgð á árlegri starfsáætlun og reglulegri upplýsingagjöf til stjórnenda.
Hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Reynsla af íþróttastjórnun, þjálfun eða verkefnastjórnun innan íþróttahreyfingar er kostur.
- Sterk leiðtogahæfni, skipulagshæfileikar og hæfni til að vinna markvisst og sjálfstætt.
- Frábær samskiptahæfni og geta til að vinna með fjölbreyttum hópum.
- Framsækinn hugsunarháttur og hæfni til að byggja upp faglegt og jákvætt starfsumhverfi.
Við bjóðum
- Áhrifaríkt og fjölbreytt starf í öflugu íþróttafélagi.
- Tækifæri til að móta framtíð golfíþróttarinnar innan Golfklúbbsins Odds.
- Samstarf við fagfólk og sterkt samfélag félagsmanna.
- Góð starfskjör í samræmi við reynslu og hæfni.