Stekkjaskóli auglýsir eftir náttúrufræðikennara í 100% starfshlutfall frá 1. ágúst 2025 á mið- og unglingastig. Leitað er eftir áhugasömum og framsæknum grunnskólakennara sem vill kenna náttúrufræði í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og skapandi skólastarf. Á meðan skólinn er að stækka mun viðkomandi kennari kenna fleiri námsgreinar í samráði við skólastjórnendur.
Í Stekkjaskóla er glæsileg náttúrufræðistofa með stórum gróðurskála sem gefur ýmsa áhugaverða möguleika er varðar verklegt nám. Kennarinn mun taka þátt í því að skipuleggja og byggja upp námsumhverfið og náttúrufræðikennslu skólans. Frábært tækifæri fyrir grunnskólakennara sem hefur brennandi áhuga á náttúrufræði og umhverfismennt.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.