Óperan auglýsir lausa til umsóknar stöðu framleiðslu- og verkefnastjóra. Um er að ræða fullt starf sem felur í sér þátttöku í uppbyggingu nýrrar óperustofnunar og þróun öflugs, faglegs óperustarfs á Íslandi. Framleiðslu- og verkefnastjóri ber ábyrgð á skipulagi og framkvæmd verkefna frá undirbúningi til verkloka í nánu samstarfi við óperustjóra, tónlistarstjóra og aðra lykilstarfsmenn. Starfið er bæði fjölbreytt og krefjandi og kallar á sterka skipulags- og samskiptahæfni. Laun eru samkvæmt viðeigandi kjarasamningi.