Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Kvikna medical

Netöryggisstjóri (Cypersecurity Manager)

Kvikna medical · Lyngháls 9, 110 Reykjavík
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-12

Kvikna Medical óskar eftir að ráða metnaðarfullan og tæknilega sterkan einstakling með áhuga á gæða- og öryggismálum til að hafa umsjón með öryggismálum í hugbúnaðarþróun fyrirtækisins. Starfið gæti hentað einstaklingum með bakgrunn í hugbúnaðargerð sem vilja þróa sig frekar í öryggis- og gæðamálum. Eins gæti starfið hentað einstaklingum sem hafa reynslu af innleiðingu ISO 27001 og hafa tæknilegan bakgrunn.

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

Umsjón með öryggismálum í hugbúnaðarþróun

Tryggja samræmi við staðla fyrir lækningatæki, m.a. IEC 81001-5-1 og AAMI SW96

Skjalfesting ferla í samvinnu við gæðastjóra

Samvinna við þróunarteymi um örugga hönnun 

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. verkfræði eða tölvunarfræði.

Þekking á öryggismálum í hugbúnaðarþróun (Cybersecurity)

Reynsla af þróunarferli hugbúnaðar er kostur

Reynsla af ISO 27001 er kostur

Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti

Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð

 

Um Kvikna Medical ehf.
Kvikna Medical ehf. vinnur að þróun og sölu á hugbúnaði og vélbúnaði fyrir heilalínurit (EEG) og eru viðskiptavinir fyrirtækisins um allan heim. Kvikna var fyrst fyrirtækja til að bjóða upp á skýjalausn fyrir heilalínurit og er enn í fararbroddi á alþjóðlegum markaði. Frekari upplýsingar um Kvikna Medical ehf. má finna: About Stratus | Kvikna Medical

Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl 2026 en unnið er úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. 

Nánari upplýsingar veita Þuríður Pétursdóttir (thuridur@intellecta.is) og Lea Kristín Guðmunsdóttir (leakristin@intellecta.is) í síma 511-1225.

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%