Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
NPA miðstöðin

Traust aðstoðarmanneskja óskast á Suðurlandi í 45% starf. Seeking reliable personal Assistants

NPA miðstöðin · 800 Selfoss
PART_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-17

English below.

Ég er að leita að persónulegu aðstoðarfólki til að aðstoða mig við ýmsar athafnir daglegs lífs eins og klæðnað, áhugamál, hreinlæti, lengri og styttri ferðalög, tiltekt o.fl. Aðstoðin fer fram á heimili mínu og þeim stöðum sem ég heimsæki í daglegu lífi.

Ég er rúmlega þrítugur hreyfihamlaður karlmaður búsettur á 800, Selfossi en er fæddur og alinn upp í Vestmannaeyjum. Ég er menntaður Kerfisstjóri og ek sérútbúnum bíl með stýripinna. Ég er afslappaður og mikill húmoristi og nýt þess að fara á tónleika, horfa á kvikmyndir, skemmta mér og njóta lífsins.

Aðstoðarfólk er ráðið sem launþegar í vaktavinnu með réttindi samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar við Eflingu og Starfsgreinasambandið með styttingu vinnuvikunnar og 36 klst. vinnuviku miðað við 100% starf.

Starfið hefst 1. Maí

Vaktir í boði.

Mánudagur, Miðvikudag, Fimmtudag og Föstudag 15:00 til 19:00 = 45% starfshlutfall. Með möguleikum á auka afleysingavöktum

Ég er að leita að einstaklingum 22 ára eða eldri.

 

Seeking reliable personal Assistants 45% job

I am looking for personal assistants to assist me with various daily activities such as dressing, hobbies, hygiene, travel, cleaning, etc. The assistance will take place at my home and the places I visit in my daily life. I am a man in my early thirties with mobility impairments.

I live in Selfoss (800) but was born and raised in Vestmannaeyjar. I am a trained systems administrator and drive a custom-adapted car with a joystick. I‘m a calm and level-headed individual who enjoys going to concerts, socializing, and making the most of life. 

Assistants are hired as shift work employees with rights according to the collective agreement of the NPA Center with Efling and SGS with 100% employment based on a 36-hour work week. 

 The job starts May 1st

Shifts available:

  • Monday, Wednesday, Thursday and Friday 15:00 to 19:00 = 45% employment rate. With the option of doing replacement shifts when people are sick.

I am looking for individuals 22 years or older with a valid driver's license.

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%