Þorláksskóli er nýr sérskóli fyrir einhverf börn sem tekur til starfa haustið 2026 í Garðabæ. Leitað er að metnaðarfullum og framsýnum skólastjóra til að leiða uppbyggingu og starfsemi skólans, móta faglegt skólastarf og byggja sterkt teymi. Skólinn vinnur eftir hugmyndafræði TEACCH og DIR/Floortime og byggir starf sitt á taugaþroskavænni og áfallamiðaðri nálgun þar sem öryggi, tengsl og skynúrvinnsla mynda grunn að námi og þroska. Áhersla er lögð á einstaklingsmiðað nám, fyrirsjáanlegt og stuðningsríkt umhverfi og traust tengsl sem styðja þátttöku, vellíðan og sjálfstæði nemenda. Jafnframt er lögð rík áhersla á faglegt starfsumhverfi, vandaðan aðbúnað og stuðning við starfsfólk þannig að það geti sinnt starfi sínu af öryggi, fagmennsku og vellíðan.