Við leitum að öflugum einstaklingi í teymið okkar í GAJA, gas- og jarðgerðarstöð SORPU, sem hefur áhuga á að taka þátt í og stuðla að aukinni endurvinnslu og minnkun loftlagsáhrifa. Lífræn efni eru unnin í stöðinni í lífgas og moltu.
Helstu verkefni starfsfólks GAJA eru: Móttaka og úrvinnsla á lífrænum úrgangi; vöktun vinnsluferlis stöðvarinnar; sigtun og afgreiðsla moltu; daglegt viðhald á vinnuvélum og vélbúnaði stöðvarinnar; ásamt því að halda vinnslusvæði, gönguleiðum og öðrum rýmum GAJA þrifalegum.