Rafeindavirki / Rafvirki / Rafmagnstæknifræðingur á útgerðarsvið Samherja.
Við leitum að tæknilega sterkum og lausnamiðuðum starfsmanni á útgerðarsvið félagsins til að hafa yfirumsjón með viðhaldi og rekstri rafeindabúnaðar skipa.
Samherji rekur öfluga útgerð, landvinnslu og fiskeldi og er eitt af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum á Íslandi.