Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Saga legal

Lögfræðingur hjá Saga legal

Saga legal · Suðurlandsbraut 4A, 108 Reykjavík
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-20

Saga legal leitar að metnaðarfullum lögfræðingi til starfa með öflugu teymi lögmannsstofunnar. Starfið felst aðallega í víðtækri ráðgjöf og hagsmunagæslu fyrir einstaklinga sem hafa orðið fyrir líkamstjóni vegna umferðarslysa. Kjósi viðkomandi að fara einnig í önnur verkefni sem stofan er með er sá möguleiki að sjálfsögðu líka fyrir hendi. Við leggjum ríka áherslu á vandaða þjónustu, mannlega nálgun og fagleg vinnubrögð.

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Hagsmunagæsla og ráðgjöf við tjónþola vegna líkamstjóns
  • Samskipti við tryggingafélög, sjúkrastofnanir og matsmenn
  • Umsjón með tjónsuppgjörum og útreikningum á bótakröfum samkvæmt skaðabótalögum
  • Gagnaöflun og ritun matsbeiðna og greinargerða sem málunum fylgja
  • Rekstur mála fyrir úrskurðarnefndum og dómstólum (ef viðkomandi er með málflutningsréttindi)

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Fullnaðarpróf í lögfræði er nauðsynlegt
  • Rík þjónustulund og hæfni til að eiga viðkvæm samskipti við fólk í erfiðum aðstæðum er nauðsynleg
  • Góð kunnátta í skaðabótarétti er nauðsynleg
  • Framúrskarandi kunnátta í íslensku og hæfni til að setja fram flókinn texta á skýran hátt er nauðsynleg
  • Reynsla á sviði skaðabóta- eða vátryggingaréttar er kostur
  • Málflutningsréttindi eru kostur

Hvað við bjóðum:

  • Tækifæri til að vaxa í starfi fyrir réttan starfsmann
  • Sérhæfingu á sviði skaðabótaréttar en einnig tækifæri til þess að fara inn á önnur réttarsvið ef viðkomandi starfsmaður kýs það
  • Gott og styðjandi starfsumhverfi þar sem liðsheild er í fyrirrúmi

Fylgigögn með umsókn:

Við óskum eftir því að eftirfarandi gögn fylgi umsókninni:

  • Ferilskrá með upplýsingum um menntun og starfsreynslu
  • Hnitmiðað kynningarbréf þar sem rökstutt er af hverju viðkomandi telur sig eiga erindi í starfið.
  • Staðfest afrit af einkunnum úr laganámi
  • Meðmæli eða upplýsingar um umsagnaraðila eru vel þegin en ekki verður haft samband við meðmælendur eða umsagnaraðila  nema með samþykki umsækjanda

Starfshlutfall o.fl.:

  • Um er að ræða 100% starfshlutfall (fullt starf)
  • Gert er ráð fyrir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.
  • Ráðið verður til að byrja með til fimm mánaða

Umsóknir og fyrirspurnir:

Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2026. Unnið er úr umsóknum jafnóðum og þær berast og hvetjum við því áhugasama til að sækja um sem fyrst.

Umsóknir skulu berast í gegnum netfangið saga@sagalegal.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir og farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar veitir Saga Ýrr Jónsdóttir hrl. í gegnum netfangið saga@sagalegal.is

Sækja um →

Launamat

1.306.000
kr / mánuð
Heimild: VR Launakönnun
Nánar: VR: Lögfræðingur
Ársstofa: 15.672.000 kr
Traust: 80%