Heilbrigðisstofnun Suðurlands leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum heimilislækni til að styrkja öflugt teymi okkar í Rangárþingi. Á heilsugæslunni starfar samhentur hópur þar sem samvinna, fagmennska og hlý þjónusta eru í fyrirrúmi. Við leitum að einstaklingi sem vill taka þátt í að byggja upp farsæla og nútímalega þjónustu fyrir fjölbreytt samfélag.
Starfið býður upp á spennandi tækifæri fyrir áhugasaman lækni sem vill þróa sig áfram í faginu og vinna í hvetjandi og jákvæðu starfsumhverfi.