Við í Álfhólsskóla leitum að skapandi, faglegum og áhugasömum kennara í umsjón og kennslu á miðstigi fyrir skólaárið 2025-2026.
Í Álfhólsskóla eru um 560 nemendur í 1.-10. bekk og um 120 starfsmenn. Skólinn byggir á langri sögu um framsækið og árangursríkt skólastarf. Starfið einkennist af fjölbreyttum kennsluháttum, áherslu á læsi, teymiskennslu og leiðsagnarnám. Allir nemendur skólans eru með spjaldtölvur. Álfhólsskóli er fjölmenningarlegur skóli sem leggur áherslu á inngildingu allra nemenda. Í skólanum eru starfrækt námsver fyrir nemendur með einhverfu. Álfhólsskóli er réttindaskóli Unicef. Skólinn hefur mótað eigin skólamenningaráætlun ,,Öll sem eitt". Skólinn er jafnframt Grænfánaskóli og Heilsueflandi skóli.
Einkunnarorð skólans eru : menntun - sjálfstæði - ánægja.