Olíudreifing leitar að öflugum og metnaðarfullum bílstjórum með meirapróf í sumarafleysingar hjá fyrirtækinu á starfsstöð okkar á Krossanesi, Akureyri. Tímabilið sem um ræðir er frá apríl/maí og fram í ágúst/september 2026.
Um er að ræða fjölbreytt störf við olíudreifingu.
Olíudreifing greiðir ADR námskeið og laun á námskeiðstíma fyrir þá bílstjóra sem ekki hafa ADR réttindi.
Helstu verkefni:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Við bjóðum þér:
Við hlökkum til að fá umsóknina þína
Tekið er á móti umsóknum ásamt afriti af meiraprófsskírteini til og með 30. apríl 2026. Nánari upplýsingar veitir Guðjón Páll Jóhannsson, svæðisstjóri Norðurlands, (gudjon@odr.is).
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Um Olíudreifingu:
Olíudreifing er þekkingar- og þjónustufyrirtæki á sviði orkumála. Hlutverk Olíudreifingar er að dreifa og halda utan um birgðir á fljótandi orkugjöfum. Félagið er nú þegar þátttakandi í orkuskiptum og er að undirbúa meðhöndlun rafeldsneytis.
Fyrirtækið rekur bifreiða-, járnsmíða-, dælu- og rafmagnsverkstæði. Einnig er rekið þjónustuverkstæði sem sinnir viðhaldi á raf- og vélbúnaði. Starfsfólk félagsins er um 130 talsins og starfar á starfsstöðvum víðsvegar um landið. Unnið er samkvæmt gæðavottuðum vinnuferlum.
Nánari upplýsingar um Olíudreifingu ehf. má finna á www.odr.is.