Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Hringiðan Internetþjónusta

Sölu og þjónustufulltrúi

Hringiðan Internetþjónusta · Skúlagata 19, 101 Reykjavík
INTERIM alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-15

Sölu- og þjónustufulltrúi – Leitum að einstaklingi í faglegt og öflugt teymi

Hringiðan óskar eftir áreiðanlegum, lausnamiðuðum og þjónustulunduðum einstaklingi með reynslu úr fjarskiptum, t.d. Internet-, farsíma- eða ljósleiðaraþjónustu.
Við erum eitt reynslumesta fjarskiptafyrirtæki landsins og þjónustum bæði einstaklinga og fyrirtæki með áherslu á persónulega þjónustu, gæði og hraða úrlausn mála.

Starfið hentar sérstaklega vel þeim sem hafa áður unnið:

  • í þjónustuveri eða afgreiðslu hjá fjarskiptafyrirtæki
  • við ljósleiðaraferla, tengingar eða uppsetningar
  • í sölu eða ráðgjöf tengdri Internet- eða farsímaþjónustu

Starfið hefst með reynslutíma og getur þróast í langtímastarf fyrir réttan aðila.

Helstu verkefni

  • Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina Hringiðunnar í Internet-, farsíma- og fjarskiptaþjónustu
  • Afgreiða pantanir, breytingar og uppsetningarbeiðnir
  • Leita lausna í tæknilegum og þjónustutengdum málum í samvinnu við teymið
  • Taka þátt í sölutengdum verkefnum og eftirfylgni
  • Aðstoða eftir þörfum í tengslum við email, hýsingu, netlausnir og Microsoft-þjónustur
  • Annað faglegt þjónustu- og sölustarf sem til fellur

Þú verður hluti af litlu og öflugu teymi þar sem hraðar ákvarðanir eru teknar og persónuleg fagmennska skiptir máli.

Hæfniskröfur

  • Reynsla úr fjarskiptum, t.d. þjónustuveri, sölu eða afgreiðslu tengdri internet- eða farsímaþjónustu
  • Þekking á ljósleiðaraferlum, uppsetningum, afgreiðslu beiðna eða sambærilegum verkefnum er mikill kostur
  • Góð samskiptahæfni, faglegt viðmót og góð þjónustulund
  • Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér kerfi (t.d. MS CRM )
  • Skipulagður vinnustíll, ábyrgð og áreiðanleiki
  • Jákvæðni og vilji til að vinna sem hluti af samstilltu fjarskipta teymi
  • Reyklaus er skilyrði
  • Stundvísi og traust vinnubrögð

Við metum mjög til reynslu ef umsækjandi hefur áður starfað í þjónustu fyrir:

  • Ljósleiðarann / Mílu
  • Nova
  • Vodafone
  • Símann
  • eða aðrar Internetþjónustur með sambærilega tækni- og þjónustuaðila

Vinnutími

  • 100% starf
  • Virkir dagar: 9.00 –17.00
  • Annar hvern laugardag eða samkvæmt samkomulagi: 13–17 

Fríðindi og starfskjör

  • Internettenging frá Hringiðunni
  • Farsími
  • Starf í faglegu þjónustuveri með sérfræðingum í net- og fjarskiptum
  • Sjálfstætt starf, þjálfun og tækifæri til að vaxa í starfi
  • Tækifæri til að vinna í litlu, öflugu teymi þar sem þín reynsla skiptir máli

Af hverju Hringiðan?

  • Öflug starfsemi í fjarskiptum síðan 1995
  • Vinnuumhverfi sem hvetur til sjálfstæðra vinnu.
  • Mikil fagþekking innan húss og sterkt teymi
  • Möguleiki á að hafa áhrif á ferla, þjónustu og upplifun viðskiptavina
  • Stuðningur í innleiðingu og þróun í starfi
Sækja um →

Launamat

770.000
kr / mánuð
Heimild: VR Launakönnun
Nánar: VR: Þjónustufulltrúi
Ársstofa: 9.240.000 kr
Traust: 80%

Fleiri störf

Hringiðan Internetþjónusta
Rekstrarstjóri / Bókhald
1.094.000 kr