Eyjafjarðarsveit óskar eftir starfsmanni í stöðu flokkstjóra vinnuskóla í sumar.
Starf flokkstjóra felst í að stjórna starfi nemenda vinnuskólans, leiðbeina nemendum og fræða þá um rétt vinnubrögð og verkþætti í starfinu, halda skýrslu um mætingar og ástundun nemenda og vinna markvisst að því að efla liðsheild og góða líðan nemenda í vinnuskólanum.
Viðkomandi þarf að vera orðinn 18 ára.
Nánari upplýsingar veitir Sunna Björg Valsdóttir á netfanginu sunna@esveit.is