Total Tempo er ungt sprotafyrirtæki sem þróar tæknivædd fótboltaþjálfunarkerfi með þeim tilgangi að bæta umhverfisskynjun, viðbragðstíma og ákvarðanatöku leikmanna.
Við erum lítið og metnaðarfullt teymi sem leggur áherslu á vandaða hönnun, einfalt notendaviðmót og áreiðanleg kerfi.
Við erum að stækka við okkur og leitum því að öflugum full stack forritara. Staðan er ætluð fyrir einstakling sem getur unnið sjálfstætt og tekið ábyrgð á verkefnum. Um er að ræða starf þar sem viðkomandi tekur virkan þátt í þróun kjarna vörunnar og sinnir bæði framenda- og bakendavinnu, með sérstaka áherslu á notendaviðmót.