Vilt þú taka þátt í að móta framtíðina?
Vinnuskóli Fjarðabyggðar auglýsir sumarstörf flokkstjóra laus til umsóknar. Í störfunum felst skipulagning og stýring á vinnuhópum unglinga fæddum 2011 og 2012 við ýmis umhverfisstörf. Flokkstjórar þurfa að vera hvetjandi, stundvísir, samviskusamir og góðar fyrirmyndir.
Æskilegt er að umsækjedur hafi náð 18 ára aldri, hafi hreint sakavottorð, bílpróf ásamt því að búa yfir skipulags- og leiðtogahæfileikum.