Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Advania

Business Central vöruhúsaráðgjafi

Advania · Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-03-30

Advania leitar að reynslumiklum og lausnamiðuðum vöruhúsaráðgjafa sem brennur fyrir skilvirkum vöruhúsarekstri og nútímalegum ferlum. Ef þú hefur góða yfirsýn yfir aðfangakeðju, skilning á daglegum áskorunum vöruhúsa og þekkingu á Dynamics 365 Business Central, þá er þetta spennandi tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif.

Um hlutverkið

Í þessu hlutverki tekur þú virkan þátt í að móta og innleiða vöruhúsalausnir hjá fjölbreyttum hópi viðskiptavina, þar sem fagmennska, náið samstarf og skýr hönnun eru lykilþættir. Þú tengir saman viðskiptavini, ráðgjafa og tækniteymi og tryggir að lausnirnar skili skýrum árangri – bæði í Business Central og tengdum handtölvulausnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ráðgjöf í Business Central með vöruhúsalausnir sem sérþekkingu
  • Greining viðskiptaþarfa og skilgreining krafna
  • Forgangsröðun verkefna og umbóta í samstarfi við viðskiptavini
  • Hönnun og þróun vöruhúsferla
  • Samræming Business Central og handtölvulausnum
  • Umsjón með prófunum og innleiðingum
  • Náið samstarf með viðskiptavinum, ráðgjöfum og tækniteymum

Menntun og hæfni

  • Reynsla af vöruhúsarekstri eða birgðastýringu
  • Þekking á ERP kerfum (Business Central / skilyrði)
  • Sterk greiningar- og samskiptahæfni
  • Reynslu af stjórnun aðfangakeðju, birgðum og vöruhúsum
  • Geta til að vinna sjálfstætt í ráðgjafarhlutverki

Í boði

  • Fjölbreytt verkefni hjá ólíkum viðskiptavinum
  • Starf í öflugu Business Central ráðgjafateymi
  • Sveigjanlegt vinnuumhverfi
  • Samkeppnishæf starfskjör
Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%