Fjölbreytt starf í frábærum hópi
Velferðarsvið Kópavogs óskar eftir eftir áhugasömu fólki til sumarafleysinga í íbúðarkjarna.
Skemmtilegt og gefandi sumarstarf á líflegum vinnustað.
Um er að ræða fullt starf í allt sumar, þar sem unnið er á vöktum.
Í íbúðakjarnanum búa sjö einstaklingar.
Við vinnum eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn, við leitumst við að veita einstaklingsmiðaðan og persónulegan stuðning á heimilum þeirra jafnt sem utan þess.
Sumarráðningar eru frá miðjum maí / byrjun júní fram í lok ágúst.