Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Flóaskóli

Umsjónarkennari á yngsta stigi við Flóaskóla

Flóaskóli · Flóaskóli Villingaholti
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-03-31

Flóaskóli er staðsettur í Villingaholti í Flóahreppi, í um 20 mínútna akstursfjarlægð frá Selfossi. Í skólanum eru um 110 nemendur í 1.-10. bekk og um 30 starfsmenn. Við skólann starfar öflugur og metnaðarfullur hópur fólks sem vinnur samhent að því að skapa jákvætt og uppbyggjandi vinnuumhverfi, hlúa vel að nemendum og stuðla að því að þeir nái að vaxa og dafna í námi og starfi. Í Flóaskóla er lögð áhersla á einstaklingsmiðað nám, teymiskennslu, leiðsagnarnám og öfluga stoðþjónustu. Mikil áhersla er á list- og verkgreinar. Skólinn er UNESCO skóli,  heilsueflandi grunnskóli og þátttakandi í grænfánaverkefninu. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði "Uppeldi til ábyrgðar" og unnið er markvisst með samskipti og líðan nemenda.

Laus er 80% -100% staða umsjónarkennara á yngsta stigi.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ eða viðeigandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veitir Þórunn Jónasdóttir skólastjóri í síma 7718342 eða í tölvupósti á thorunn@floaskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2026, ráðið verður í starfið frá 1. ágúst 2026. 

 

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%