Þjónustuver - þjónustufulltrúi - sumarstarf
Öryggismiðstöðin auglýsir eftir metnaðarfullum þjónustufulltrúa í Þjónustuver til að leysa fjölbreytt verkefni í skemmtilegu teymi.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og um er að ræða sumarstarf með möguleika á fastráðningu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Menntunar- og hæfniskröfur
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni eru afgreiðsla erinda, móttaka viðskiptavina, símsvörun.
Um er að ræða sumarstarf á samhentum, traustum og metnaðarfullum vinnustað. Möguleiki er á framlengingu í starfi eftir að sumri lýkur.
Vinnutími er frá kl. 08-16 virka daga.
Umsóknarfrestur er til og með 31.3.2026
Umsókn skal senda inn í gegnum Alfreð. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Jóhannsson verkefnastjóri í gegnum netfangið bj@oryggi.is
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Vakin er athygli á því að allir starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar þurfa að skila inn sakavottorði.
Öryggismiðstöðin er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreyttar lausnir og þjónustu í öryggis-og velferðartækni, fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Hjá Öryggismiðstöðinni starfar öflugur hópur sérfræðinga sem býr yfir brennandi áhuga, faglegri þekkingu og mikilli reynslu af þjónustu við viðskiptavini. Við leggjum ríka áherslu og metnað í gæði ráðgjafar við val á lausnum. Hornsteinar þjónustu okkar er öflug tækniþjónusta ásamt rekstri vaktmiðstöðvar til móttöku viðvörunarboða og útkallsþjónusta öryggisvarða allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Við leggjum áherslu á vandaða og persónulega þjónustu með gildi fyrirtækisins að leiðarljósi, forystu, umhyggju og traust.