Leikskólinn Tjarnarskógur Egilsstöðum auglýsir lausa til umsóknar 100% framtíðarstarf leikskólakennara. Staðan er laus nú þegar.
Leikskólinn Tjarnarskógur er 9 deilda leikskóli með 150 börn á tveimur starfsstöðvum. Leikskólinn Tjarnarskógur er að vinna að innleiðingu á Uppeldi til ábyrgðar og horfir til fjölgreindarkenningar Howard Gardners í starfsaðferðum sínum. Einkunnarorð skólans eru: gleði, virðing, samvinna og fagmennska.
Næsti yfirmaður er leikskólastjóri.