Smiðjan Fönix óskar eftir að ráða kröftugan og jákvæðan einstakling í sumarstarf í verslun fyrirtækisins á Rifi. Í starfinu felst afgreiðsla og söluráðgjöf til viðskiptavina um vörur fyirtækisins. Ásamt því að taka á móti vörum og önnur tilfallandi verkefni.
Verslun okkar er að þróast hvað varðar vöruúrval og þjónustu og getur það verið spennandi ferli að taka þátt í fyrir réttan einstakling. Möguleiki á áframhaldandi hlutastarfi eftir sumar.
Vinnutími er virka daga frá 08:00 - 16:00 og annan hvern laugardag frá 10:00 - 14:00.
Viðkomandi getur hafið störf í maí.