Vegna aukinna verkefna leitum við að starfsmönnum í verslanir okkar á höfuðborgarsvæðinu í 100% starf. Starfið felur í sér að að veita viðskiptavinum Bílanausts leiðsögn og framúrskarandi þjónustu.
Hæfniskröfur:
-20 ára eða eldri.
-Reynsla af afgreiðslu á varahlutum og eða reynsla í bifvélavirkjun kostur.
-Góð tök á íslensku máli, bæði skriflega og munnlega.
-Áhugi og vilji til að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.
-Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
-Skipulagsfærni.
-Hreint sakavottorð.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið.
Bílanaust - Fyrir fólk á ferðinni