Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu

Starfsmaður í 60-100 % starf í skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - Ylja neyslurými

Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu · Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
PART_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-03-31

Auglýst er eftir starfsfólki með heilbrigðis bakgrunn eða félagsfræðilegan bakgrunn í skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - Ylja neyslurými,  60-100 % starf

Viltu vinna mikilvægt og gefandi starf sem hefur bein áhrif á líf fólks sem notar vímuefni?
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu leitar að fólki með heilbrigðismenntun, félagsfræðilegan bakgrunn, eða fólki með reynslu og þekkingu í málaflokknum í hluta eða fullt starf.

Þetta er einstakt tækifæri fyrir rétta einstaklinga sem hafa áhuga á skaðaminnkun, mannréttindum og notenda-og áfallamiðaðri heilbrigðisþjónustu.

Hvað er Ylja?

✔️ Ylja er fyrsta neyslurýmið á Íslandi – skaðaminnkandi úrræði fyrir einstaklinga sem nota vímuefni í æð.
✔️ Markmið verkefnisins er að auka lífsgæði og bæta heilsufar þeirra sem nota reglubundið vímuefni í æð.
✔️ Neyslurými eru lagalega vernduð umhverfi þar sem notendur 18 ára og eldri geta neytt ávana- og fíkniefna undir eftirliti sérhæfðs starfsfólks, með fyllstu hreinlætis-, öryggis- og sýkingavörnum.
✔️ Þessi úrræði eru starfrækt víða um heim og hafa sýnt fram á mikinn samfélagslegan ávinning bæði fyrir einstaklingana sjálfa og samfélagið í heild.

✔️ Opnunartími er mánudaga til laugardaga frá kl.10-16. Vinnutími er frá kl. 9-17.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Samskipti og sálfélagslegur stuðningur við þjónustuþega
  • Veita fræðslu, stuðning og ráðgjöf til einstaklinga í jaðarstöðu
  • Tengiliður í heilbrigðis- og félagsþjónustu
  • Beita hugmyndafræði skaðaminnkunar í allri vinnu og þjónustu við þjónustuþega
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur og eiginleikar sem við leitum að

  • Starfsmaður með menntun á sviði heilbrigðismenntunar t.d hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, aðrir með félagsfræðilegan bakgrunn eða þekkingu og reynslu af málaflokknum.
  • Góð þekking á hugmyndafræði skaðaminnkunar er skilyrði
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og faglegum vinnubrögðum 
  • Þekking á málefnum og starfi Rauða krossins er kostur
  • Hæfni til að vinna í notenda- áfallamiðaðri heilbrigðisþjónustu
  • Jákvæðni, þolinmæði og sveigjanleiki og hæfni til að takast á við krefjandi verkefni af yfirvegun
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál eru kostur

📅 Umsóknarfrestur: Lok mars - Umsóknir eru yfirfarnar jafnóðum – viðkomandi þarf að hefja störf sem fyrst

Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum Alfreð – við förum yfir umsóknir jafnóðum og þær berast.

📩 Nánari upplýsingar:
Ósk Sigurðardóttir, deildarstjóri
✉️ osk@redcross.is

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%

Fleiri störf

Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu
Hjúkrunarfræðingur í skaðaminnkandi verkefni - Ylja
984.000 kr