Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Arnarskóli

Arnarskóli - sumarstarfsfólk

Arnarskóli · Kópavogsbraut 5B, 200 Kópavogur
INTERIM alfred

Starfslýsing

Hefur þú áhuga á að vinna með börnum  

Leitum að stuðningsfulltrúum í fullt starf frá miðjum maí, með áhuga á að starfa með börnum með þroskafrávik. Jákvæðni, þolinmæði, sveigjanleiki, frumkvæði og samviskusem eru eiginleikar sem við kunnum vel að meta. 

Arnarskóli er sjálfstætt starfandi sérskóli fyrir börn með einhverfu og önnur þroskafrávik. Við leggjum ríka áherslu á að sníða nám og frístundastarf að þörfum hvers og eins nemanda og fjölskyldu hans. Í Arnarskóla er boðið uppá samfellda þjónustu allan daginn, allan ársins hring.

Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í lok maí byrjun júní og unnið fram yfir miðjan ágúst, eða áfram næsta vetur.

Skólinn er opinn frá 7:30-17:00 alla virka daga, starfsmenn vinna 8 tíma innan þessa opnunartíma 

Góð tök á íslensku talmáli skilyrði.

 

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%