Við leitum eftir söludrifnum og jákvæðum einstaklingi til að ganga til liðs við öflugt söluteymi okkar. Hjá okkur vinnur samheldinn hópur sem gerir sitt allra besta til að veita framúrskarandi þjónustu og söluráðgjöf til allra okkar viðskiptavina.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni í sölu, greining sölugagna og eftirfylgni sem eru bæði krefjandi og skemmtileg.
Það er skilyrði að viðkomandi hafi töluverða reynslu af sölumennsku og þjónustu. Það er kostur að hafa reynslu í sölu til veitingahúsa, eða reynslu af veitingargeiranum.