Við óskum eftir öflugum starfsmanni í viðhald, bilanagreiningu og viðgerðir á Alfa Laval tækjum og búnaði. Alfa Pro ehf er að þjónusta skilvindur, eimara, varmaskipta o.fl.
Starfið er mjög fjölbreytt og geta verkefnin verið á landsbyggðinni svo viðkomandi þarf að vera tilbúinn að fara út fyrir höfuðborgarsvæðið í ákveðin verkefni.
Frábært tækifæri fyrir áhugasaman einstakling til þess að koma að uppbyggingu á fyrirtæki með háleit markmið.