Tölvulistinn óskar eftir að ráða sölufulltrúa í hlutastarf og sumarstarf í sumar
Starfið felst í sölu og þjónustu við viðskiptavini verslunarinnar þar sem rík áhersla er á ráðgefandi sölu og góða upplýsingamiðlun ásamt framúrskarandi þjónustu.
Vinnutími er skv. samkomulagi en um er að ræða möguleika á vöktum eftir hádegi virka daga, laugardaga 11-16 og/eða sunnudaga 13-17 yfir veturinn og 10-18 virka daga yfir sumarið ásamt helgarvöktum.