Langar þig í fjölbreytt og skemmtilegt sumarstarf þar sem þú keyrir um landið eftir fyrirframákveðnu leiðarkerfi og selur ís til fólks á öllum aldri? Þá gæti Ísbíllinn verið eitthvað fyrir þig!
Í boði eru:
Vaktavinna í lengri ferðum
Kvöld- og helgarvinna í styttri ferðum
Dagvinna í fyrirtækjaheimsóknum og almenn lagervinna
Bæði fullt starf og hlutastörf eru í boði. Laun eru að hluta árangurstengd sem felur í sér mikil tækifæri fyrir rétta aðila.