Lotus Car Rental óskar eftir að ráða hressan, metnaðarfullan og stundvísan starfsmann á réttingar- og sprautuverkstæði okkar að Lyngási 15, Garðabæ.
Um er að ræða fullt framtíðarstarf í góðum og samheldnum hópi starfsmanna þar sem lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð, góða liðsheild og jákvætt starfsumhverfi. Starfið hentar einstaklingi sem hefur áhuga á bifreiðum, vinnur af nákvæmni og leggur metnað í að skila vönduðu verki.