Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Blush

Sumarstörf hjá Blush

Blush · Dalvegur 32, 201 Kópavogur
PART_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-02

Fullnægjandi störf í boði
Blush leitar að öflugum og jákvæðum einstaklingi í teymið okkar!
Við viljum bæta við okkur skemmtilegum og drífandi liðsfélaga í verslun okkar að Dalvegi 32b í Kópavogi. Um er að ræða 50–100% starf, með möguleika á áframhaldi.

Starfið felst fyrst og fremst í afgreiðslu og þjónustu í versluninni, en einnig er möguleiki á að taka að sér heimakynningar. Kynningar fara annað hvort fram í verslun Blush eða í heimahúsum.

Við leitum að einstaklingi sem er:

  • Jákvæður, sjálfstæður og á auðvelt með mannleg samskipti
  • Getur hafið störf ekki síðar en um 15. maí
  • Hefur áhuga á að starfa með okkur í sumar og mögulega lengur

Við bjóðum upp á sveigjanlegt starfshlutfall (50–100%), skemmtilegt vinnuumhverfi og góðan starfsanda. Einnig er möguleiki á áframhaldandi hlutastarfi með skóla næsta vetur fyrir réttan aðila.

Ef þú hefur áhuga á að slást í hópinn okkar, heyrðu þá í okkur!

Vinnutími í verslun:

2-5 virka daga frá 10:30-18:15

11:30-18:15 önnur hver helgi

100% starf miðast við 168 vinnustundir.

Um Blush

Blush hefur verið leiðandi í sölu kynlífstækja frá árinu 2011. Verslunin sérhæfir sig í sölu á hágæða kynlífstækjum og leggur áherslu á vönduð og góð endurhlaðanleg tæki. Verslunin er staðsett á Dalvegi 32b í Kópavogi. Blush er framúrskarandi- og fyrirmyndar fyrirtæki og fékk titilinn vörumerki ársins 2021 og 2022. Eigandi Blush, Gerður Huld Arinbjarnar er einnig markaðsmanneskja ársins 2021. Hjá fyrirtækinu er góður starfsandi og gott vinnuumhverfi. 

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%