Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
SÁÁ

Læknir óskast til starfa hjá SÁÁ

SÁÁ · Stórhöfði 45, 110 Reykjavík
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Laus er til umsóknar staða læknis á sjúkrahúsinu Vogi. Sóst er eftir lækni með áhuga á meðferð og þjónustu við fólk með fíknsjúkdóm og fjölskyldur þeirra. Helst er óskað eftir lækni í 100% starf en hlutastarf eða tímabundið starf kemur til greina.    Starf hjá SÁÁ gefur einstakt tækifæri til að auka færni og læra nýja þekkingu til að sinna betur þeim fjölbreytta og fjölmenna hópi sem hefur fíknsjúkdóm. Slík reynsla nýtist öllum læknum í sínum klínísku störfum.   Sjúkrahúsið Vogur er með rúm fyrir 40 sjúklinga þar sem veitt er inniliggjandi afeitrun, sálfélagsleg meðferð og undibúningur að endurhæfingu í teymisvinnu með öðru heilbrigðisstarfsfólki. Á göngudeild við sjúkrahúsið Vog er einnig veitt lyfjameðferð við ópíóíðafíkn fyrir um 400 manns, á sérhæfðri göngudeild með lyfjunum buprenorphine, buprenorphine/naloxone og Methadone, ýmist per os, sublingual eða með subcutan forðasprautum. Sálfélagsleg meðferð heldur áfram fyrir inniliggjandi á meðferðarstöðinni Vík í Kjalarnesi fyrir 60 manns í einu, og göngudeildir SÁÁ í Efstaleiti og á Akureyri, veita fjölbreytta meðferð og þjónustu.

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%