Gára leitar að jákvæðu og drífandi starfsfólki í fjölbreytt sumarstörf hjá félaginu þar sem engir tveir dagar eru eins.
Gára sér um umboðsmennsku fyrir erlend skip sem koma til landsins, þar sem stærsti hluti þeirra eru skemmtiferðaskip. Starfsfólk Gáru sinnir fjölbreyttum og mikilvægum verkefnum sem tryggja faglega og skjóta þjónustu.