SBA-Norðurleið leitar að öflugum og skipulögðum einstaklingi í sumarstarf á skrifstofu okkar í Hafnarfirði.
Við leitum að jákvæðum og ábyrgum aðila sem hefur áhuga á ferðaþjónustu og vill taka þátt í fjölbreyttum verkefnum á skrifstofu. Starfið felur m.a. í sér almenn skrifstofustörf, þjónustu við viðskiptavini og aðstoð við daglega starfsemi.