Við leitum að metnaðarfullum, hlýjum og áhugasömum hjúkrunarfræðingi til að ganga til liðs við okkur. Starfshlutfall er eftir nánara samkomulagi eða 60-80%.
Starfið er fjölbreytt og spennandi og felur meðal annars í sér húð-og fegrunarmeðferðir, aðstoða skurðlækni í skurðaðgerðum, aðstoð á vöknun og almenn skurðstofustörf.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.