Vesturbyggð vinnur að innleiðingu nýs stjórnskipulags í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins með það að markmiði að styrkja faglega forystu, efla samstarf og þróun skólastarfs og styðja betur við litlar rekstrareiningar í dreifðu sveitarfélagi. Í sveitarfélaginu eru reknir þrír grunnskólar með leikskóladeildum auk leikskóla. Í nýju skipulagi verður lögð aukin áhersla á faglega samræmingu og samstarf milli leik- og grunnskóla. Leikskólastjóri gegnir þar lykilhlutverki, bæði í daglegum rekstri leikskóla og í faglegri þróun leikskólastarfs í sveitarfélaginu.
Leikskólastjóri Vesturbyggðar ber ábyrgð á faglegri forystu og daglegum rekstri leikskólans Arakletts. Jafnframt hefur leikskólastjóri mikilvægt hlutverk í að styðja við og samræma leikskólastarf í sveitarfélaginu, þar á meðal leikskóladeildir við grunnskólana. Dagleg stjórnun leikskóladeilda verður áfram í hverjum skóla. Leikskólastjóri er hluti af stjórnendateymi skóla Vesturbyggðar og tekur virkan þátt í þróun skólastarfs í sveitarfélaginu.
Leikskólastjóri situr í stjórnendateymi ásamt stjórnendum hvers skóla, skólastjóra Vesturbyggðar, sviðsstjóra fjölskyldusviðs og fulltrúa stoðteymis.