Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sjúkraliði/sjúkraliðanemi/hjúkrunarnemi sumarafleysing

Reykjavíkurborg - Velferðarsvið · Sléttuvegur 7, 103 Reykjavík
INTERIM alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-26

Hefurðu áhuga á gefandi starfi í sumar og tilheyra vinnustað þar sem ríkir góður andi?

Heimaþjónusta Sléttuvegi auglýsir eftir sjúkraliðum og sjúkraliða- eða hjúkrunarnemum í sumarafleysingu við samþætta þjónustu heimahjúkrunar og heimastuðnings sumarið 2026.

Um er að ræða líflegan vinnustað þar sem veitt er staðbundin þjónusta á Sléttuvegi. Starfið býður upp á fjölbreyttar áskoranir og miðar að því að veita hjúkrun til einstaklinga í sjálfstæðri búsetu.

Á Sléttuvegi starfar þéttur og samheldinn starfsmannahópur og tökum við vel á móti nýju starfsfólki.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og stéttafélagi viðkomandi. 

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%