Auglýstar eru 100% stöður umsjónarkennara á yngra og eldra stigi við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri (BES), frá og með skólaárinu 2026-2027.
Við skólann eru tvær starfsstöðvar þar sem nemendur yngra stigs eru á Stokkseyri og nemendur eldra stigs á Eyrarbakka. Við skólann eru 136 nemendur, 70 á yngra stigi og 66 á eldra stigi. Sérstaða skólans felst í einstaklingsmiðaðri kennslu og skapandi greinar fá mikið vægi í skólastarfinu. Mikil áhersla er lögð á góð samskipti og góða samvinnu við nærumhverfið. BES leitast við að vera teymiskennslu og teymisvinnuskóli og er jafnframt í þróunarvinnu sem miðar m.a. að því að innleiða Jákvæðan aga í skólastarfið. BES er Erasmus+ skóli, vinnur skv. heilsueflandi gildum og vinnur markvisst gegn einelti. Þá er BES virkur þátttakandi í Lærdómssamfélagi Árborgar og í öflugu samstarfi við aðra grunnskóla í Árborg.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.