Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri

Grunnskólakennarar á yngra og eldra stig við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri

Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri · Háeyrarvellir 56, 820 Eyrarbakki
FULL_TIME alfred

Starfslýsing

Frestur: 2026-04-13

Auglýstar eru 100% stöður grunnskólakennara á yngra og eldra stigi við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri (BES), frá og með skólaárinu 2026-2027.

Við skólann eru tvær starfsstöðvar þar sem nemendur yngra stigs eru á Stokkseyri og nemendur eldra stigs á Eyrarbakka. Við skólann eru 136 nemendur, 70 á yngra stigi og 66 á eldra stigi. Sérstaða skólans felst í einstaklingsmiðaðri kennslu og skapandi greinar fá mikið vægi í skólastarfinu. Mikil áhersla er lögð á góð samskipti og góða samvinnu við nærumhverfið. BES leitast við að vera teymiskennslu og teymisvinnuskóli og er jafnframt í þróunarvinnu sem miðar m.a. að því að innleiða Jákvæðan aga í skólastarfið. BES er Erasmus+ skóli, vinnur skv. heilsueflandi gildum og vinnur markvisst gegn einelti.  Þá er BES virkur þátttakandi í Lærdómssamfélagi Árborgar og í öflugu samstarfi við aðra grunnskóla í Árborg. 

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%