Laus eru til umsóknar tvö full störf nýdoktora við Heimspekistofnun á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Störfin tengjast rannsóknaverkefninu Samstaða í vísindum sem styrkt er með öndvegisstyrk frá Rannsóknasjóði (RANNÍS). Störfin eru tímabundin til þriggja ára. Það hvort samstaða ríki meðal vísindafólks um tilteknar kenningar getur skipt sköpum um það hvernig vísindin þróast og hvaða afstöðu almenningur tekur til vísindakenninga. Sem dæmi má nefna að ef samstaða er um tiltekna vísindakenningu meðal helstu sérfræðinga er vísindafólk af öðrum sviðum oft einnig tilbúið að fallast á kenninguna, byggja rannsóknir sínar á henni og miðla kenningunni til almennings. Á hinn bóginn sýnir vísindasagan að stundum hefur mikil samstaða ríkt um alrangar kenningar, auk þess sem mikil samstaða meðal vísindafólks getur í sumum tilvikum komið í veg fyrir að eðlilegar rökræður eigi sér stað meðal vísindafólks. Verkefnið hverfist um að svara tveimur grundvallarspurningum um það hvernig samstaða vísindafólks er notuð sem rök fyrir vísindalegum kenningum: Í hverskonar aðstæðum, og í krafti hvers, er rökrétt og réttmætt að færa fram rök sem höfða til þess að samstaða ríki meðal vísindafólks um tiltekna kenningu? Hvernig má nýta slík rök til að stuðla að réttmætu trausti á vísindalegum rannsóknum og auknum framförum í vísindum? Verkefnið Samstaða í vísindum miðar að því að svara þessum spurningum á nýstárlegan og kerfisbundinn hátt með því að þróa kenningakerfi sem byggir á aðferðafræðilegri þríhyrningamælingu (e. triangulation), þ.e. notkun ólíkra aðferða til að svara sömu spurningum, og með því að draga mikilsverða lærdóma af nætlegum heimspekirannsóknum á eðli og afleiðingum ágreinings. Verkefnið hefur þrjú meginmarkmið: Að þróa nákvæma þekkingarfræðilega kenningu um áreiðanleika röksemdafærslna sem höfða til samstöðu, ásamt hagnýtum ráðleggingum um hvernig best sé að styðjast við slíkar röksemdafærslur við raunverulegar aðstæður. Að setja fram þekkingarfræðilega réttlætingu fyrir því að miðla vísindalegum niðurstöðum og kenningum með því að höfða til samstöðu innan vísinda, til dæmis með svonefndri samstöðumiðlun (e. consensus reporting), og skýra hvernig það geti verið skynsamleg leið fyrir almenning til að mynda sér skoðanir um vísindarannsóknir. Að þróa nákvæma kenningu um það hvaða hlutverki samstaða gegnir í framförum vísindanna sjálfra og yfirfæra þessa kenningu síðan á, eða bera það saman við, framfarir á öðrum rannsóknarsviðum, svo sem í heimspeki. Verkefninsstjóri rannsóknaverkefnisins er Finnur Dellsén (Háskóla Íslands og & University of Inland Norway) og meðrannsakendur eru Joey Pollock (Háskólinn í Osló), Dunja Seselja (Ruhr University Bochum & TU Eindhoven), og Peter Vickers (Durham University). Að auki felur verkefnið í sér samstarf við ráðgjafanefnd sem er skipuð efirfarandi aðilum: Maria Baghramian (University College Dublin), Franz Dietrich (Paris School of Economics & CNRS/CES), Mikkel Gerken (University of Southern Denmark), Stephan Lewandowsky (University of Bristol), Cailin O¿Connor (University of California, Irvine), og Miriam Solomon (Temple University).