HVE óskar eftir að ráða inn í sumarafleysingu ljósmóður í mæðravernd og skimun fyrir leghálskrabbameini á heilsugæslustöð HVE í Borgarnesi. Tímasetningi er eftir samkomulagi við yfirhjúkrunarfræðing en afleysingin er til allt að 16 vikna. Starfshlutfall er 20% eða eftir nánari samkomulagi. Hægt er að starfa samhliða á fæðinga - og kvennadeild HVE Akranesi en störf á 2 deildum teljast inn í vaktahvata sem er kostur. Möguleiki er á að fleiri en einn starfsmaður deili með sér verkefninu