HVE Stykkishólmi óskar eftir að ráða aðstoðarmann sjúkraþjálfara til starfa. Um er að ræða 50% stöðu í dagvinnu með vinnutíma frá 10:00-14.00. Í Stykkishólmi eru sjúkradeild, hjúkrunarheimili, Háls- og bakdeild ásamt göngudeildarþjónustu. Umsvif deildarinnar eru töluverð á öllum deildum hússins og á göngudeild. Fjölbreytt verkefni og þróun starfsins er framundan.