Launatrausti

Launagagnagrunnur Íslands
Stofnað 2024 // Opinber gögn
Til baka í störf
H

Doktorsnemi í Marie Sklodowska-Curie Actions verkefni EUARTHURS - Tilfinningar og kyngervi í Tristan hefðinni

starfatorg

Starfslýsing

Frestur: 29.04.2026
Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema í verkefninu EUARTHURS: European Arthurs, Medieval to Modern sem er innan Marie Sklodowska Curie doktorsnetsins ( tilvísun: 101226326 (2026-30). Starfið verður hýst í Íslensku- og menningardeild við Háskóla Íslands. Starfið er til þriggja ára og er hluti af evrópsku þjálfunarneti sem mun beinast að þvermenningarlegri rannsókn á útbreiðslu Arthúrs-sagnarinnar frá hinum upphaflegu velsku sögnum yfir í alþjóðlegan menningararf. Doktorsneminn mun vinna náið með öðrum doktorsnemum í EUARTHURS -verkefninu, sem verða staðsettir í Bangor háskóla í Bretlandi, Scuola Normale Superiore di Pisa á Ítalíu, Clermont Auvergne háskóla í Frakklandi, Amsterdam háskóla í Hollandi og Zürich háskóla í Sviss. Aðalleiðbeinandi í verkefninu er Sif Ríkharðsdóttir (prófessor við Háskóla Íslands), í doktorsnefndinni verður meðal annars Sébastien Douchet (prófessor við Université Clermont Auvergne), og ráðgjafar innan verkefnisins verða Martha Baldon (lektor við University of St Andrews) og Fanny Moghaddassi (prófessor við Université de Strasbourg).
Sækja um →

Launamat

984.000
kr / mánuð
Heimild: Landsmeðaltal
Nánar: national avg (2024)
Ársstofa: 11.808.000 kr
Traust: 20%