Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema í verkefninu EUARTHURS: European Arthurs, Medieval to Modern sem er innan Marie Sklodowska Curie doktorsnetsins, tilvísun: 101226326 (2026-30). Starfið verður hýst í Íslensku- og menningardeild við Háskóla Íslands. Starfið er til þriggja ára og er hluti af evrópsku þjálfunarneti sem mun beinast að þvermenningarlegri rannsókn á útbreiðslu Arthúrs-sagnarinnar frá hinum upphaflegu velsku sögnum yfir í alþjóðlegan menningararf. Val á menningar- og málasvæðum verða háð bakgrunnsþekkingu viðkomandi og í samráði við teymið, en geta innihaldið fornnorrænu og önnur norræn tungumál, miðensku, miðháþýsku og ítölsku og tengda minjagripi. Viðkomandi mun fá þjálfun við Þjóðminjasafn Íslands. Doktorsneminn mun vinna náið með öðrum doktorsnemum í EUARTHURS -verkefninu, sem verða staðsettir í Bangor háskóla í Bretlandi, Scuola Normale Superiore di Pisa á Ítalíu, Clermont Auvergne háskóla í Frakklandi, Amsterdam háskóla í Hollandi og Zürich háskóla í Sviss. Aðalleiðbeinandi í verkefninu er Sif Ríkharðsdóttir (prófessor við Háskóla Íslands), í doktorsnefndinni verður meðal annars Raluca Radulescu (prófessor við Bangor University), og ráðgjafi í verkefninu verður Sofia Lodén (prófessor við Stockholms universitet).