Hjá Fangelsismálastofnun eru lausar til umsóknar fjórar stöður varðstjóra við Fangelsið Hólmsheiði. Gert er ráð fyrir því að forstjóri Fangelsismálastofnunar skipi í embættin til fimm ára frá og með 1. júní 2026. Um ný embætti er að ræða sem er liður í umbótum og endurskipulagningu á starfsstigum innan fangelsanna. Sá sem hlýtur skipun í embætti mun þurfa að sækja stjórnunarnámskeið á vegum Fangelsismálastofnunar eða námskeið sem stofnunin ákveður að millistjórnendur þurfi að sækja. Helstu upplýsingar um vinnustaðinn og starfið Fangelsismálastofnun heyrir undir dómsmálaráðuneytið. Stofnunin fer með yfirstjórn fangelsismála, m.a. umsjón með rekstri fangelsa og tryggir að fullnusta refsinga fari fram með öruggum og skilvirkum hætti í samræmi við lög um fullnustu refsinga nr. 15/2016. Stofnunin leggur áherslu á vellíðan í starfi og jákvæðan starfsanda. Hjá stofnuninni starfa alls um 160 starfsmenn, flestir fangaverðir, á fimm mismunandi starfsstöðvum, fjórum fangelsum og skrifstofu. Í Fangelsinu Hólmsheiði starfa tæplega 50 starfsmenn, flestir fangaverðir. Næsti yfirmaður varðstjóra er aðalvarðstjóri við Fangelsið Hólmsheiði.